Gúmmívinnslan -traust þjónusta í meira en tuttugu ár

  Losaðu þig við belginn !       Viltu lækka rekstrarkostnaðinn? Við aðstoðum eigendur og rekstraraðila vörubíla við að lækka kostn að við hjólba ða

Hjólbarða

Kaup á notuðum belgjum


 
Losaðu þig við belginn !      

Viltu lækka rekstrarkostnaðinn? Við aðstoðum eigendur og rekstraraðila vörubíla við að lækka kostn að við hjólba ða og hjólbarðaþjónustu verulega!Þú kemur með belgi af notuðum vörubíladekkjum og við annað hvort sólum þá fyrir þig eða kaupum þá af þér á hagstæðu verði.

Helstu stærðir.                                                                                                                    

12R22.5 - 315/80R22.5 - 385/65R22.5 - 295/80R22.5 - 275/70R22.5
ýmsar stærðir í 19.5 og 17.5"

Verðdæmi:

315/80R22.5, kr. 3.500,- pr. stk. með vsk.
(m/v belg frá viðurkenndum framleiðanda og í góðu ásigkomulagi)

Láttu sóla eigin belgi:

Það er alltaf hagstæðast að taka notuð dekk undan bílum meðan þau eru ennþá heil og amk. 1-2mm eftir af munstri. Senda þau í sólningu og láta okkur sóla þau með því munstri sem þér hentar. Í boði er gott úrval af sumar-, vetrar-, heilsárs- og vagnadekjum. Þannig færðu líka sömu belgina til baka og veist hvað þú ert með í höndunum. 
Við sjáum alltof mikið af belgjum sem eru keyrðir þar til vírarnir standa út úr. Við bendum einnig á að skv. lögum er ekki heimilt að aka á belgjum með minna munstri en 1 mm. Einnig er hætta er á að of slitin dekk hvellspringi og valdi skemmdum á bílnum auk þess að skapa verulega slysahættu.

Settu belgi upp í ný dekk eða dekkjaþjónustu:

Ef þú kaupir bara ný dekk undir bílana þína, þá getur verið hagstætt að setja notuðu dekkin upp í þau nýju. Við tökum belgina hvort heldur sem er upp í kaup á vörum eða þjónustu. Þú getur þannig látið notuðu vörubíladekkin upp í kaup á dekkjum undir sendibílinn eða pallbílinn.

Skilmálar:

Belgir eru mismunandi að gæðum eftir framleiðanda aldri og ástandi. Alorka áskilur sér rétt til að verðleggja belgi eftir flokkunarkerfi sínu og hafna þeim belgjum sem ekki þykja í ástandi til að vera sólaðir.

Reynslan sýnir okkur að umtalsverð afföll verða af innlendum belgjum sem koma til sólningar. Innfluttir belgir hafa verið sérvaldir og oft gegnumlýstir til að tryggja að einungis sólningarhæfir belgir séu seldir til sólningarfyrirtækja. Innlendir belgir hafa oftar en ekki verið notaðir við erfiðar aðstæður og á slæmum vegum þannig að ástand þeirra er almennt lakara en innfluttra.

Raunverulegt ástand belgja kemur oft ekki í ljós fyrr en farið er að vinna þá til sólningar. Þegar belgurinn er raspaður niður kemur í ljós hvort skemmdir leynast í honum sem koma í veg fyrir að hann sé sólaður. GV vill einungis skila fyrsta flokks vöru til kaupenda. Þess vegna er belgjum sem uppfylla ekki ströngustu kröfur til sólningar hafnað ef í ljós koma skemmdir í þeim í vinnsluferlinu. Þetta kostar mjög oft auka vinnu þar sem byrjað er að vinna með belgi sem síðan þarf að henda.

Tekið er við belgjum með fyrirvara um skoðun og flokkun sem fer fram á Akureyri. Belgjum má skila til GV á Akureyri eða í Reykjavík. Allt að 10 virka daga getur tekið að fá niðurstöðu skoðunar. Inneign vegna belgja sem skráð á viðskiptareikning viðkomandi og má eftir það taka út í vörum og/eða þjónustu eins og henta þykir.

Belgir eru ekki greiddir út með peningum.

Vissir þú að . . .

. . . að Gúmmívinnslan (GV) á Akureyri er eina fyrirtækið á landinu sem getur boðið viðskiptavinum sínum að sóla notuð vörubíladekk ?

. . . góða belgi má sóla 2-3 sinnum og ná þannig út úr þeim margfaldri endingu ?

. . . það er tveggja ára ábyrgð á sóluðum GV hjólbörðum ?

. . . verð á vörubíladekki, sóluðu með hágæða Nokian vetrarmunstri, er aðeins rúmlega helmingur af verði á sambærilegu nýju dekki.

. . . framleiddar eru öryggishellur, gúmmístaurar og vörur fyrir umferðaröryggi úr gúmmísalla sem fellur til við vinnslu á sóluðum vörubíladekkjum.

 


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf