Gúmmívinnslan -traust þjónusta í meira en tuttugu ár

Markmið Gúmmívinnslunnar er að efla endurvinnslu á gúmmí sem til fellur við hjólbarðasólun og tengda starfsemi. Endurvinnslan miðar að því að nýta til

Hjólbarða

Umhverfisstefna

Markmið Gúmmívinnslunnar er að efla endurvinnslu á gúmmí sem til fellur við hjólbarðasólun og tengda starfsemi. Endurvinnslan miðar að því að nýta til fullnustu þau efni, sem til falla við aðra starfsemi fyrirtækisins, svo og að þróa arðbæra framleiðslu úr hráefnum sem að öðrum kosti yrði ekki notuð.

Gúmmívinnslanleggur áherslu á markaðsstarf sem styrkir stöðu fyrirtækisins í hjólbarðasólun og eflir endurvinnsluþátt starfseminnar. Skal það meðal annars gert með því að veita viðskiptavinum og almenningi markvissar upplýsingar um þann þátt í rekstri fyrirtækisins er lýtur að endurvinnslu og endurnýtingu hverskonar.

Þróunarstarf Gúmmívinnslunnar miðar fyrst og fremst að því að þróa framleiðslu á nauðsynlegum og hagnýtum vörum sem stuðla að öryggi þeirra sem þær nota. Við þróun nýrra vara er það megin markmið að mengun umhverfisins sé haldið í lágmarki.

Öll starfsemi fyrirtækisins skal stuðla að verndun umhverfisins og bættu öryggi þeirra er vörur fyrirtækisins nota.

Með stefnumörkun sinni í umhverfismálum vill Gúmmívinnslan stuðla að eftirfarandi þáttum:

  • Halda mengun umhverfisins í lágmarki - Bæta nýtingu auðlinda jarðar
  • Endurvinna úrgangsefni eins og frekast er unnt
  • Nota hráefni og framleiðslutæki er valda sem minnstri mengun - Efla öryggi neytenda

Samþykkt á fundi stjórnar Gúmmívinnslunnar ehf.  24. mars 1992.

Ef þú hefur spurningar varðandi umhverfisstefnu fyrirtækisins eða vörur þess, vinsamlegast hafðu samband.
 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf