Gúmmívinnslan -traust þjónusta í meira en tuttugu ár
Gúmmívinnslan hf. var stofnuð 1982 og var upphaflegur tilgangur enduvinnsla á gúmmíi. Strax var farið að endurvinna
vörubílahjólbarða með sólningu. Við

Um Gúmmívinnsluna

Gúmmívinnslan hf. var stofnuð 1982 og var upphaflegur tilgangur enduvinnsla á gúmmíi. Strax var farið að endurvinna
vörubílahjólbarða með sólningu. Við sólninguna fellur til gúmmí sem nýtt er til framleiðslu á ýmsum nytjahlutum svo
sem öryggishellum, mottum, millibobbingum fyrir fiskitroll, plöttum og fleiru. Stöðugt er verið að þróa nýjar vörur úr
gúmmíúrgangi og það nýjasta eru gúmmístaurar til umferðamerkinga.
Einnig var sett á stofn hjólbarðaverkstæði í tengslum við sólninguna og hafinn innflutningur á
hjólbörðum og fleiri vörum úr gúmmíi. ( Endurvinnsla )
Árið 1995 keypti Gúmmívinnslan með Vélsmiðjuna ODDA sem framleiðir stálbobbinga og margt annað
úr stáli fyrir sjávarútveginn ásamt alls konar annarri sérsmíði úr stáli. (Stáldeild.)
Árið 1999 var Hjólbarðaþjónusta Einars keypt og er nú rekin að Gleráreyrum undir nafninu
Dekkjatorgið. Dekkjatorgið sinnir öllum minniháttar viðgerðum ásamt því að vera smurstöð og
hjólbarðaþjónusta. ( DT )
Í október 2006 yfirtók Gúmmívinnslan rekstur Höfðadekks í Tangarhöfða 15, Reykjavík.
Árið 2008 yfirtók GV einnig rekstur Alorku í Reykjavík. Verkstæðið í Reykjavík er nú rekið undir nafni
Gúmmívinnslunnar. Þar eru í boði flestar gerðir hjólbarða, fullkomin hjólbarðaþjónusta auk annarra framleiðsluvara
Gúmmívinnslunnar.
Starfsmenn Gúmmívinnslunnar ehf eru um 10 talsins.
Könnun
Velur þú ódýustu gerð af dekkjum fyrir bílinn þinn?
...