Gúmmívinnslan -traust þjónusta í meira en tuttugu ár
Míkróskurður myndar fleiri brúnir sem dekkið
hefur til að grípa í veginn með. Þessar brúnir minnka hemlunarvegalengd í bleytu og á hálu

Míkróskurður
|
|

|
Míkróskurður myndar fleiri brúnir sem dekkið
hefur til að grípa í veginn með. Þessar brúnir minnka hemlunarvegalengd í bleytu og á hálu yfirborði.
|
Míkróskurður fjölgar kubbum og hvössum brúnum í munstri dekksins, en
það eru einmitt þessar brúnir sem skipta máli þegar dekk þarf að halda góðu veggripi í hálku og bleytu.
|
|

|
Betri kæling
Við akstur hitna hjólbarðar og heitt gúmmí
eyðist hraðar en það sem kaldara er. Mikil hitnun dekkja getur einnig verið orsök fyrir skemmdum og óeðlilegu sliti. Með
míkróskurði verður til stærra yfirborð á dekkinu þar sem stórir kubbar hafa verið skornir í marga smærri. Þannig næst
meiri kæling sem aftur lengir líftíma hjólbarðans.
|
Míkróskurður eykur sveigjanleika dekksins með því að skera stóra kubba
í marga smærri. Aksturinn verður mýkri og belg dekksins og hliðum þess er hlíft við álagi. Líftími dekksins lengist og aksturinn
verður þægilegri.
|
|
Vissir þú að það er hægt að míkróskera
notuð dekk?
Hálfslitin dekk sem hafa að einhverju leyti misst eiginleika sína öðlast nýtt líf með
míkróskurði. Veggrip og hemlun eykst til muna og öruggt er að nota dekkið lengur.
Könnun
Velur þú ódýustu gerð af dekkjum fyrir bílinn þinn?
...