Gúmmívinnslan -traust þjónusta í meira en tuttugu ár

      Gúmmívinnslan  er með stóran lager af hjólbörðum fyrir flestar gerði ökutækja og vinnvéla. Aðal lager er á Akureyri en einnig er lager í

Hjólbarða

Hjólbarðar

     

Gúmmívinnslan  er með stóran lager af hjólbörðum fyrir flestar gerði ökutækja og vinnvéla. Aðal lager er á Akureyri en einnig er lager í tjónustudeild okkar í Tangarhöfða 15 í Reykjavík. Sendum samdægurs hvert á land sem er.

Val á hjólbörðum
Við val á hjólbörðum skal fyrst hafa í huga gerð ökutækis, hraðamöguleikar (innan löglegra marka), ökulag þess sem ekur bifreiðinni, ástand vega, gerð vega, árstíð, o.fl.. Í þessu sambandi má benda á t.d. að það getur skipt verulegu máli að nota þar til gerða vetrarhjólbarða að vetri til o.sfrv. Ef kaupandi er í vafa skal hann hafa samband við hjólbarðaverkstæði til að fá sérfræðiaðstoð við sitt val.
Áður en hjól eru sett undir bíl þarf að athuga vel að stærð og týpa hjólbarða sé rétt, hvort felgan sé rétt, hæð og breidd, hvort ventill sé í lagi, en ventillinn er síðasti loftloki og því mjög mikilvægur. Athugið einnig ef nota þarf slöngu hvort slangan sé af réttri gerð og af réttri stærð.
 
 
Athugið sérstaklega
Að burðarþol hjólbarða sé það sama og/eða meira en krafist er fyrir viðkomandi bifreið, þetta á sérstaklega við um bifreið sem notuð er í flutningum, stórum eða smáum. Ef burðarþol er minna en krafist er, er vart hægt að búast við öðru en minnkandi endingu og ónýtum börðum löngu áður en eðlilegt getur talist.
Að blanda ekki saman mismunandi týpum af hjólbörðum á sama bílinn. Bifreið með Q hraðamerkta hjólbarða ætti að vera með Q merkta barða allan hringinn, eins er með T merkta barða og H, o.sfrv. Það er mjög mikilvægt að fara ekki fram úr uppgefnum hraðamörkum eða burðarþolsmörkum hjólbarða, slíkt getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.




 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf