|
|
|
|
GV hefur um langt árabil framleitt öryggishellur úr gúmmíi sem notaðar eru á leikvöllum, við sundlaugar og á öðrum útisvæðum þar sem gæta þarf öryggis og varna slysum. Öryggishellurnar uppfylla evrópska gæðastaðla hvað varðar dempun við fall úr ákveðinni hæð.
Aðrar vinsælar framleiðsluvörur eru mottur til notkunar á vinnustöðum þar sem mikið er staðið við vinnu, millibobbingar fyrir fiskitroll sem og plattar, hnallar og fantar fyrir umferðarmerkingar og umferðaröryggi.
Stöðugt er verið að þróa nýjar vörur úr gúmmíúrgangi og það nýjasta eru gúmmístaurar til merkinga og afmörkunar á bílastæðum og innkeyrslu
Framleiðslan á endurvinnsluvörunum og tækin sem notuð eru til hennar eru að miklu leyti þróuð
og smíðuð af
frumkvöðlinum Þórarni Kristjánssyni, stofnanda GV.

Markmið GV er að efla endurvinnslu á gúmmí sem til fellur við hjólbarðasólun ogtengda starfsemi. Endurvinnslan miðar að því
að nýta til fullnustu þau efni, sem til falla við aðra starfsemi fyrirtækisins, svo og að þróa arðbæra framleiðslu úr
hráefnum sem að öðrum kosti yrði ekki notuð.
og smíðuð af
frumkvöðlinum Þórarni Kristjánssyni, stofnanda GV.Þróunarstarf GV miðar fyrst og fremst að því að þróa framleiðslu á nauðsynlegum og hagnýtum
vörum sem stuðla að öryggi þeirra sem þær nota. Við þróun nýrra vara er það megin markmið að mengun umhverfisins
sé haldið í lágmarki.

Öll starfsemi fyrirtækisins skal stuðla að verndun umhverfisins og bættu öryggi þeirra er vörur fyrirtækisins nota. Með stefnumörkun sinni
í umhverfismálum vill GV stuðla að eftirfarandi þáttum:- Halda mengun umhverfisins í lágmarki - Bæta nýtingu auðlinda jarðar.
- Endurvinna úrgangsefni eins og frekast er unnt.
- Nota hráefni og framleiðslutæki er valda sem minnstri mengun.
- Nota hráefni og framleiðslutæki er valda sem minnstri mengun.
- Efla öryggi neytenda.










